Hvað kemur á undan, eggið eða hænan?

Samkvæmt reynslu minni af sjúklingum sem sækja mína þjónustu er ég mjög efins um að hægt sé að flokka þetta svona. Heldur tel ég oft erfitt að sjá hvað kemur á undan eggið eða hænan. Ef þú hefur verið sterkur og athafnasamur einstaklingur sem skilgreinir þig mikið út frá því hvað þú starfar og tapar svo vinnugetunni, hefur það þá ekki áhrif á andlega heilsu? Við erum með mikið af fólki sem fær ekki næga hvatningu til að vinna það sem það getur heldur erum við að hefna því fyrir að reyna að bjarga sér sjálft með tekjuskerðingum og slíku. T.d. getur sjúklingur á örorku ekki farið í langskólanám á bótum, jafnvel þó að hann hafi skert sjálfsmat og hræðist að fara af henni og yfir á Lánasjóð Ríkisins. Mér hefur fundist það fólk hrætt við að það muni ekki uppfylla kröfur um námafköst og við höfum enga leið til þess að auðvelda því námið með lægri kröfum. Þá getur einstaklingur sem hefur misst starfsorku og svo í kjölfarið orðið gjaldþrota eða farið á svartan lista fjármálafyrirtækja ekki fengið námslán. Hann getur þá hvorki fengið námslán né sótt nám á örorku.

Við þurfum að hugsa þetta öðruvísi. Fólkið okkar kemur okkur við hvort sem það er á örorku eða ekki. Um leið og einstaklingur er kominn á örorku gleymum við honum og hann breytist oftar en ekki í svokallaða "vampíru" þ.e. þann sem sefur á daginn en vakir á nóttunni. Þetta á sérstaklega við um ungt fólk. Þannig koma upp geðraskanir,þunglyndi og smám saman útilokast þessir einstaklingar frá atvinnulífinu og menntalífinu. Það er ekki það sama að vera fatlaður eða veikur og að geta ekki unnið fyrir sér. Sjáum Hawkins stjörnufræðing. Hann hefur miklar tekjur vegna menntunar sinnar en er samt mjög áberandi fatlaður. Auðveldum þessum ónotaða mannauð okkar til að komast á stað þar sem það getur framfleytt sér. Hvort sem það er með langskólamenntun, iðnmenntun, listmenntun eða öðru.


mbl.is Geðraskanir helsta skýring örorku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ef almættinu þóknaðist að skapa þig með einhverskonar röskun átt þú ekki mikla möguleika á réttlæti á Íslandi?

Hvers vegna?

Jú! Skóla-starfs-fólk ræður yfir heilsu-greiningu barns, umfram foreldri og heilbrigðis-menntuðu fólki á heilsugæslu-stöðvum og réttindum og greiningar-réttindum til hjálpar verður að fara fram í skólum?

Kennarar hafa oft fyrsta trúverðugleika, og síðan er kannski hlustað á foreldri, sem að sjálfsögðu þekkja börnin best, eða þeir sem börnin hafa tengst á fyrsta árinu eða árunum? En þessi sannindi fá ekki hljómgrunn hjá öllum sem vinna hjá svika-kerfinu? Hvers vegna? M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.5.2010 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband