Þetta er fáránlegt!

Seint ætla ég fanatíkusinn að mæla reykingum bót en er þetta ekki of langt gengið í einu stökki? Mér finnst algerlega fáránlegt að fólk verði að fara inn á lyfjastofnanir til að kaupa sígarettur og ef að fara á að selja þær sér ætti frekar að setja söluna inn í ÁTVR. Hefur einhver þessara þingmanna hugsað um áhrif þessa banns á ferðaþjónustuna? Nú eða hvað þá álagið á heilsuræslurnar? Á fjársvelt heilbrigðiskerfið að fara að manna fleiri stöður í það að útvega reykingamönnum sígarettur?

Mér er fullljóst að þetta er alvarlegur kvilli og löngu væri búið að loka vegum sem dræpu eins marga á ári en mér finnst þetta full geræðislegt stökk og sérstaklega í viðkvæmu efnahagsástandi okkar. Stefnum að því að banna reykingar en ekki á einu bretti og ekki núna.


mbl.is Einungis sérmenntaðir heilbrigðisstarfsmenn skrifi upp á tóbak fyrir tóbaksfíkla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Næstum því sammála þér. Finnst það algjör óþarfi selja tóbak eingöngu í ÁTVR (einnig áfengi) Ef fólk vill fara útí búð sem hefur mun sveigjanlegri opnunartíma en ÁTVR þá afhverju banna þeim það? En jú þetta er algjörlega fáranlegt!

Eiríkur (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 07:14

2 identicon

Sammála. Ég reyki ekki og þetta er viðbjóður og ég vill ekki að fólk sé að reykja nálægt mér. En hvað fólk gerir við sína heilsu er bara e h sem mig varðar ekkert um! Ef fólk vill reykja sig í gröfina og drekka sig þangað líka þá bara gerir fólk það og fólk á bara að fá að gera það ef það er það sem fólk vill gera sér. Siv,Árna jonsen og e h öðrum varðar ekkert um hvort fólk reyki heima hjá sér eða ekki. þetta er bara bilun og þetta rugl þarf að stoppa!

óli (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 12:12

3 identicon

Flott,

í framtíðinni þá má ekki gera neitt óheilbrigt ! Bönnum allt óheilbrigt ! 

það má bara gera óheilbrigt, með læknisvottorði.  Í framtíðinni má bara kaupa sér kókakóla og hamborgara með læknisvottorði !   Þetta er svoddan einsdæmi... hef ekki séð slíka framtíð einu sinni í vísindaskáldsögu, en flott samt !!!  og við íslendingar getum verið fyrst til !

 En hvenær ætlum við íslendingar að byrja að endurvinna sorp og ná nágrannaþjóðum okkar í þeirri framtíðarvæðingu?

Jonsi (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband